Frá Gothia Cup
Strákarnir okkar í 4. fl. hafa það mjög gott á Gothia Cup. Andinn í hópnum er einstaklega góður þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið í góðu skapi allan tímann. Það eru tvö lið frá Haukum sem taka þátt í þessu móti, A og B lið og er skipt í lið eftir aldri þannig að A lið er eldri árgangur og B lið sá yngri.
Bæðii lið hafa spilað tvo leiki. A liðið hefur lent á móti mjög sterkum andstæðingum og tapaðist fyrsti leikurinn 4-2 en þeir spiluðu á móti sænsku liði í þessum leik. Engu að síður voru strákarnir að spila ágætis fótbolta. B liðið vann hins vegar sinn leik 3-0 á móti liði frá Frakklandi og að sjálfsögðu var mikil gleði sem fylgdi þessu.
Í dag lék A liðið á móti liði frá Finnlandi og eftir jafnan leik og góðan fótbolta máttu strákarnir okkar sætta sig við tap 1-0.
B liðið á sigurbraut.
B liðið spilaði stórkostlega í dag og vann sinn leik 5-1. Drengirnir fór hreint á kostum og yfirspiluðu andstæðinga sína allan leikinn. Aron skoraði 2, Ísak var með eitt, Sverrir 1 og Marteinn 1. Svíarnir sem þeir mættu í þessum leik sáu ekki til sólar allan leikinn.
Það líður öllum vel og biðja fyrir góðri kveðju heim.
