Á leið á Gothia Cup
N.k. föstudag 9. júlí leggja strákarnir okkar í 4. fl. karla af stað til Svíþjóðar til að taka þátt í Gothia Cup. Þeir hafa verið afar duglegir að safna fyrir þessari ferð í tæpt ár og ekki er laust við að spenningur þeirra sé að ná hámarki núna. En áður en lagt er „iann“ spila strákarnir við Breiðablik á Ásvöllum á morgun fimmtudag 8. júlí kl. 17:00, A lið og B lið kl. 18:30.
Það er vitað að strákarnir eiga að spila við lið frá Frakklandi, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi í undanrásum á Gothia Cup. Það fer svo eftir árangri þeirra hvernig framhaldið verður.
Lagt verður af stað frá Ásvöllum á föstudagsmorgun og er mæting kl. 06:30 og óskum við þeim góðrar og árangursríkrar ferðar.
Gísli Vagn Jónsson
