Essóferð 5.fl kk

Við í 5.flokki karla fórum á Essómótið miðvikudaginn 3.júní og fórum við á
einkabílum.Við fórum á Essómtið með 4-lið og stefndum við á það að gera
okkar allra allra besta og vera liði okkar Hauka til sóma:). Sumir voru
komnir áður en flestir komu til Akureyrar um klukkan 14:00 þennan sama dag og
fórum við þá að taka okkur til en fyrsti leikur hja D-liðinu átti að
hefjast kl. 15:00. Eftir þennan dag voru kannski ekki úrslitin hagstæð en
strákarnir stóðu sig vel.Svo fóru allir að sofa um 22:30 og vissu að það
mundi vera erfiður dagur í vændum. Allir vöknuðu klukkan 07:00 og fóru í
morgunmat. B-liðið keppti fyrsta leikinn gegn Álftanes,Haukar unnu 4-2 og
fyrsti sigur Hauka staðreynd. Næst var leikur hjá A-liðinu sem vann
Tindastóll 3-1 í hörkuleik svo þessi dagur byrjaði vel hjá Haukunum:)
C-liðið vann stærsta sigurinn hjá Haukum en þeir sigruðu Sindra frá Höfn
9-0. D-liðið keppti gegn Stjörnunni og þetta var skemmtilegasti leikur sem
ég sá á Essó-mótinu kannski ekki jafn leikur en Haukar áttu svona 20 færi
en markmaður Stjörnunar á hrós skilið fyrir góðar markvörslur en leikurinn
endað 1-0 fyrir Haukum og þetta var þvílík skemmtun. Og svona gekk þetta
þennan dag upp og niður hjá okkur Haukamönnum en ég held samt að allir voru
nú alveg sama hvernig leikirnir fóru bara að hafa gaman að þessu er aðal
málið.Svo fóru allir í hádegismat um 12:00 leitið.Svo var keppt og keppt
allan daginn og þegar fimmtudagurinn lauk þá voru Haukar búnir að vinna 5
leiki og allir orðnir alveg dauðþreyttir. Það var nú ekkert rosa erfitt að
láta alla fara í svefn. Föstudaginn byrjaði þetta bara snemma eða klukkan
07:00 þá fóru flest öll liðin í mat en sumir fengu að sofa lengur. A-liðið
byrjaði ekki vel og tapaði leiknum 2-4 gegn HK og var sko menn ekki sáttir
með það og allir stefndu á það eitt að gera betra í næsta leik sem var gegn
Víkingi. B-liðið keppti strax á eftir A-liðinu það var líka gegn HK og var
þetta jafn leikur en því miður þurftu Haukar að bíta í það súra epli að
tapa 2-1. C-liðið átti næsta leik gegn Vikingi og voru þeir allir að spila
vel í þessu móti en í þessum leik töpuðu þeir 2-1 en stóðu sig samt vel.
A-liðið keppti næst gegn Víkingi og var þetta leikur upp á líf eða dauða
Haukar sigruðu leikinn 1-0 en ef þetta átti að lýsa einhverja liði best
mundi ég lýsa þessu leik Hauka eins og leik Grikkja því við skoruðum strax
í byrjun en vörðumst vel og uppskárum uppúr því. B-liðið á næsta leik sgegn
Víkingi og var þessi leikur mjög jafn og ef ég man rétt var staðan í
hálfleik jöfn en svo var þessi seinni hálfleikur sem var ekkert illa leikin
en þá komust Víkingar í gírin og bara áttu þennan sigur skilin 4-1 tap
Hauka staðreynd. D-liðið keppti næst gegn Fjölni en þeir unnu þann leik 1-0
bara gott en D-liðið var með engan markmann en Aron Örn stóð sig vel í
markinu en framan af móti höðfu hann og fleiri skiptst á að vera í marki.
Eftir þennan lífríka dag var ljóst um hvaða sæti Haukar mundu keppa um.
Föstudagskvöldið fóru allir niður í bæ og þar var kvöldskemmtun þar sem Örn
Árnason stóð sig vel og Papar komu og boðið var uppá Pylsur, Fanta og ís.
Eftir þetta kvöld voru voða fáir þreyttir ekki vegna þess að þeir kepptu
fáa leiki því Gos-ið fór kannski illa í menn og sumir voru bara komnir í
meiri fótbolta en þegar það var búið að smala öllu liðinu inn var bara
farið að sofa. Ekki má gleyma veðrinu sem var bara gott lítið af rigningu
en á kvöldin var svolítið kalt. Skemmtilegur og langur dagur liðin og bara
einn dagur eftir.Sumir voru búnir að fara í sund og fara í Knattþrautir
Símans og ég held að allir gerðu einhvað skemmtilegt. A-liðið lenti í
19.sæti en þeir sigruðu Selfoss 2-1, B-liðið lenti í 27.sæti en þeir unnu
KA 4-0, C-liðið lenti í 23.sæti en þeir töpuðu á móti ÍBV 1-2 og D-liðið
lenti í 19.sæti en þeir sigruðu ÍA 2-0. Ég vill þakka foreldrum kærlega
fyrir að styðja okkur svona frá bærlega.

Fyrir hönd 5.flokks karla,

Arnar Daði

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…