Aðallið Wibledon kemur til Íslands
Opinn fundur á Ásvöllum fimmtudag
kl. 20:30 á Ásvöllum – FJÖLMENNUM
Eins og áður hefur komið fram er von á strákunum í aðalliðið Wimbledon til Ísland n.k. sunnudag. Þeir munu búa í Hvaleyrarskóla á meðan þeir dvelja á Íslandi. Þar er ætlunin að þeir geti matast tvær til þrjár máltíðið á dag. Mikið hefur verið unnið í því að útvega mat fyrir 25 manns þessa viku en betur má ef duga skal. Einnig hafa margir boðið fram aðstoð sína við komu þessa liðs en enn vantar e.t.v. nokkuð á að fullmannað sé í öll störf allan tímann.
Einnig hefur leit að rútu að láni (langferðarbifreiðs eins og Stuðmenn kalla það) ekki borið árangur.
Til þess að reyna að hnýta alla lausa enda boða ég til fundar með ykkur annað kvöld kl. 20:30 á annarri hæð að Ásvöllum.
Þó fundarboðið komi nokkuð seint vona ég að allir sjái sér fært að mæta og hvet ég sérstaklega stuðningsmannaklúbb meistaraflokks að láta sjá sig.
Kær kveðja,
Gísli Vagn, framkvstj. Knd. Hauka
