Haukar – Þróttur R. 1 – 1
Ásvellir 06.07.2004 kl.: 20.00
Lið Hauka.:
Jörundur Kristinsson; Pétur Örn Gíslason, Darri Johansen (fl), Óli Jón Kristinson, Edilon Hreinsson; Goran Lukic, Kristján Ómar Björnsson, Ryan Mouter; Arnar Steinn Einarsson, Hilmar Geir Eiðsson, Sævar Eyjólfson.
Í gærkveldi kom lið Þróttara úr kaupstaðnum í heimsókn á Ásvelli & öttu kappi við okkar menn.
Hófu gestirnir leikinn af miklum krafti & frá fyrstu mínútu sóttu þeir af miklum móð, lágu einfaldlega í sókn. Eftir svo um 8. mínútna leik uppskáru þeir svo laun erfiðisins. Eftir innkast frá hægri náði Páll Einarsson sóknarmaður Þróttara að snúa á bakvörð Hauka & komast einn inn fyrir, fast skot hans söng svo í þakneti Jörundar markmanns örstund seinna. Staðan strax orðin 1-0 fyrir gestina.
Eftir þetta mark vöknuðu Haukamenn þó aðeins, en það voru hinsvegar gestirnir sem áttu næstu hættulegu marktilraunina. Það var á 12. mínútu að Þróttarar komu aftur upp hægri kant heimamanna, & átti sóknarmaður þeirra góðan möguleika á að koma þeim tveim mörkum yfir en náði ekki að stýra fyrirgjöfinni framhjá Jörundi í Hauka markinu. En það var nokkuð áberandi hve margar sóknaraðgerðir gestanna komu upp kanta heimamanna.
En eftir þetta tóku Haukarnir hinsvegar hægt & bítandi öll völd á vellinum & átti Sævar til að mynda tvö mjög góð tækifæri einn á móti markmanni að jafna leikinn, en ekkert varð úr því. Þrátt fyrir mikinn atgang að marki Þróttara náðu okkar menn ekki að jafna leikinn fyrir hlé.
Seinni hálfleikur hélt ég myndi þróast líkt og sá fyrri, þar sem Þróttarar kæmu mjög sterkir til leiks fyrstu mínúturnar en en sem betur fer fór það eigi á þann veg. Okkar menn héldu uppteknum hætti frá fyrrihálfleik & gerðu sig líklega til að jafna leikinn. Svo var loks úr að á ca. 50 mín. að Arnar Steinn náði loks að jafna leikinn 1-1.
Sá atburður átti sér svo stað á ca. 78 mín. leiksins að Sævar náði að leika framhjá varnarmanni Þróttara sem féll við & fékk knöttinn í höndina inni í vítateig. Dómari leiksins átti aðeins einnar kosta völ & dæmdi vítaspyrnu. Það var svo Sævar sjálfur sem framkvæmdi spyrnuna, en því miður renndi hann knettinum framhjá markstöng gestanna.
Það sem eftir lifði leiks sóttu bæði lið nokkuð, án þess þó að skapa sér veruleg marktækifæri. Þó kom Ómar Karl sér í gott færi seint í leiknum, en ákvað að reyna að leika knettinum alla leið inn í markið í stað þess að spyrna honum.
Leikurinn endaði svo með skiptum hlut liðanna eftir rúmar 90 mín. af skemmtilegri knattspyrnu, & geta Þróttarar verið nokk þakklátir fyrir það stig er þeir fengu fyrir erfiði sitt, því heimamenn geta talist óheppnir að hafa ekki náð að landa öllum þeim þrem stigum sem í boði voru í þessum leik.
Þeir sem báru af í Haukaliðinu í gær voru einna helst, Jörundur í markinu, miðverðirnir tveir, Darri & Óli Jón sem & þeir Ryan, Goran & Kristján Ómar á miðjunni.
Með Haukakveðju Stóri Dvergur
