Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni.

Verðlaunahafar tímabilsins

Meistaraflokkur kvenna

  • Best – Rakel Oddný Guðmundsdóttir
  • Mikilvægastar – Embla Steindórsdóttir og Sara Sif Helgadóttir
  • Leiðtogi ársins – Alexandra Líf Arnarsdóttir

Meistaraflokkur karla

  • Bestur – Freyr Aronsson
  • Mikilvægastur – Aron Rafn Eðvarðsson
  • Leiðtogar ársins – Össur Haraldsson og Darri Aronsson

3. flokkur karla

  • Mestu framfarir – Helgi Marinó Kristófersson
  • Mikilvægastur – Daníel Máni Sigurgeirsson

3. flokkur kvenna

  • Mestu framfarir – Kristín Ása Egilsdóttir
  • Mikilvægust – Ebba Guðríður Ægisdóttir

U-lið karla

  • Mikilvægastur – Daníel Wale Adeleye
  • Bestur – Jón Karl Einarsson

Kveðjur til þeirra sem eru að ljúka sínum tíma hjá Haukum

Við þökkum þessum leikmönnum innilega fyrir sitt framlag á undanförnum árum. Þau hafa skilið eftir sig djúp spor í starfi félagsins – bæði innan vallar og utan.

Meistaraflokkur kvenna

  • Elísa Helga Sigurðardóttir – 116 leikir
  • Ragnheiður Sveinsdóttir – 274 leikir
  • Ester Amira Ægisdóttir – 75 leikir
  • Rut Arnfjörð Jónsdóttir – 35 leikir
  • Thelma Melsted – 159 leikir
  • Inga Dís Jóhannsdóttir – 104 leikir
  • Birta Lind Jóhannsdóttir – 252 leikir
  • Díana Guðjónsdóttir – 256 leikir

Meistaraflokkur karla

  • Jón Ómar Gíslason – 36 leikir
  • Magnús Gunnar Karlsson – 98 leikir
  • Adam Haukur Baumruk – 433 leikir, tæplega 1300 mörk
  • Brynjólfur Snær Brynjólfsson – 439 leikir

Takk fyrir allt – og gangi ykkur sem best

Við óskum þessum leikmönnum velfarnaðar í næstu skrefum og minnum á að Ásvellir verða alltaf heimili þeirra. Þau hafa lagt sitt af mörkum til að móta menningu, metnað og hjarta Hauka.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…