Elín Klara til liðs við IK Sävehof

Handknattleiksdeild Hauka og IK Sävehof ásamt Elínu Klöru Þorkelsdóttur hafa komist að samkomulagi um að Elín Klara gangi til liðs við IK Sävehof núna í sumar. 

Elín Klara lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Hauka í febrúar 2020 þá 15 ára að aldri. Tímabilið eftir varð hún stór hluti af liðinu og síðan var ekki aftur snúið og hefur Elín Klara verið valin besti leikmaður deildarinnar undanfarin 2 tímabil. Uppgangur hennar hefur verið samofin uppgangi Haukaliðsins sem um síðustu helgi vann bikarmeistaratitilinn í fyrsta skiptið síðan 2007.

Elín er einnig orðin lykilmaður í íslenska A landsliðinu og fór hún á sitt fyrsta stórmót í desember síðastliðin. Síðastliðið sumar fór Elín í sitt síðasta verkefni með yngri landsliðum Íslands og var hún valin besti miðjumaður á HM U20.

Það verður söknuður af Elínu Klöru á Ásvöllum en einnig tilhlökkun að sjá hana spreyta sig á nýjum vígstöðum. Einnig er það heiður fyrir Hauka að senda enn einn leikmanninn úr sínu starfi í atvinnumennsku.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…