Evrópukeppnissjóður Hkd. Hauka

Eins og handboltaunnendum er kunnugt er þáttaka í Evrópukeppni afar dýr og lítið er um greiðslur frá EHF, líkt og meistaraflokkar í knattspyrnu fá frá UEFA. Liðin okkar þurfa að hafa alla anga úti til fjáröflunar til viðbótar við að æfa 5 sinnum í viku auk séræfinga.

Því hefur Handknattleiksdeild Hauka ákveðið að hrinda nú í framkvæmd fjársöfnun til styrktar þátttöku meistaraflokkanna okkar í Evrópukeppnum. Hér að neðan eru söfnunarlínur með mismunandi upphæðum. Þar gefst þér kæri stuðningsmaður, tækifæri til að leggja þitt að mörkum til að hægt sé að halda áfram keppni við erlend lið í Evrópukeppni. Munum að “margt smátt gerir eitt stórt”.

Styrkjum handboltann – 500 kr Áfram alla leið
Styrkjum handboltann – 1000 kr Áfram alla leið
Styrkjum handboltann – 2000 kr Áfram alla leið
Styrkjum handboltann – 5000 kr Áfram alla leið
Styrkjum handboltann – 10000 kr Áfram alla leið
Styrkjum handboltann – 20000 kr Áfram alla leið

Ef þessar leiðir henta ekki er líka hægt að millifæra á okkur, 0544-26-008954 kt 670281-0279 Handkn.deild Hauka

Allir fyrirspurnir sendist á handbolti-vefsala@haukar.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…