Það sem er innifalið í aðild af Haukum í horni – handbolti er:
Haukar í horni – Gullfélagi
Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokki karla og kvenna í handbolta. Gildir ekki á kappleiki þar sem innkomu er skipt. Einnig sem ársmiði á leiki í mfl. karla og kvenna í knattspyrnu og körfubolta. Ársmiðinn birtist sem árskort í forritinu Stubb þar sem hægt er að sækja frímiða á leiki handknattleiksdeildar. Til að fá aðgang að leikjum annarra deilda þarf að sýna kortið við innganginn. (Ath. kortið skráist ekki sjálfkrafa í Stubb en ætti að detta inn fljótlega eftir skráningu)
Merkt sæti í áhorfendastúku í handboltasal á Ásvöllum.
Aðgangur að VIP aðstöðu allra deilda.
Léttar veitingar á leikdag i VIP – aðstöðu Handknattleiksdeildar.
Léttur kvöldverður fyrir “Viðburðarleiki í handbolta” í meistaraflokki tvisvar sinnum á keppnistímabilinu.
Þjálfarateymi mfl. karla og kvenna leggja línurnar fyrir leik í VIP.
- Ef óskað er eftir að greiða mánaðargjald með greiðsluseðli í heimabanka eða með eingreiðslu, þá skal senda tölvupóst á asdis@haukar.is með upplýsingum um kennitölu, gsm númer og netfang.
Haukar í horni – Silfurfélagi
Ef valið er að vera silfurfélagi þá er allt ofangreint innifalið í mánaðargjaldi, nema “merkt sæti í áhorfendastúku” í handboltasal á Ásvöllum.
- Ef óskað er eftir að greiða mánaðargjald með greiðsluseðli í heimabanka eða með eingreiðslu, þá skal senda tölvupóst á asdis@haukar.is með upplýsingum um kennitölu, gsm númer og netfang.
Bakhjarlar handboltans







