Haukar sigruðu Grindavík, 1 -0, í kvöld með marki Björgvins Stefánssonar á 51. mínutu en um var að ræða mikinn baráttuleik við fremur erfið veðurskilyrði.
Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum fékk Grindavík vítaspyrnu en Will gerði sér lítið fyrir og varði spyrnu Óla Baldurs Bjarnasonar sem fékk í kjölfarið að líta rauða spjaldið fyrir að fara harkalega í hann.
Frábær sigur okkar stráka í öðrum leik Íslandsmótsins.
Næsti leikur er í Borgunarbikarnum og þá förum við aftur til Ólafsvíkur þar sem við mætum Víking en sá leikur fer fram á þriðjudaginn kl. 19:00.
Næsti deildarleikur er gegn KA laugardaginn 23. maí á Akureyrarvelli og þar á eftir mæta Framarar í heimsókn á Ásvelli en sá leikur er fimmtudaginn 28. maí kl. 19:15.
Áfram Haukar!