Haukar á toppinn eftir góðan sigur á Selfyssingum

HaukarHaukar fyrr í kvöld góðan 2-1 sigur á Selfyssingum í skemmtilegum leik á Schenkervellinum á Ásvöllum. Mörkin í leiknum komu á fyrstu 10 mínútunum en nóg fjör var það sem eftir lifði leiks.

Leikurinn var ekki nema fjögurra mínútna gamall þegar Haukar skoruðu fyrsta markið, var þar að verki Hilmar Rafn Emilsson með skoti af stuttu færi eftir klafs í teignum.

Einungis þremur mínútum síðar skoraði Aron Jóhannsson annað mark Hauka í leiknum með mjög keimlíku marki. Stuðningsmenn heimamanna hafa eflaust haldið að framundan væri markaveisla hjá sínum mönnum.

Gestirnir voru þó á öðru máli og það tók þá ekki nema þrjár mínútur að svara fyrir sig var þar að verki Ingi Rafn Ingibertsson með gott mark eftir lipurt samspil Selfyssinga. Þrátt fyrir að mörkin í leiknum hafi ekki orðið fleiri vantaði svo sannarlega ekki færin eða fjörið í hann.

Hjá gestunum var Javier Lacelle mjög öflugur allar leikinn og raunar með ólíkindum að hann hafi ekki skorað úr einni af sínum fjölmörgu tilraunum í leiknum, en Sigmar í marki Hauka átti virkilega góðan dag og varði hvert skot hans á fætur öðru.

Hinu megin vallarins var nóg að færum einnig, meðal annars átti Hilmar Trausti Arnarson fyrirgjöf sem endaði í þverslá Selfoss marksins og einnig átti Anthonio De Souza skot í stöng eftir að hafa sloppið einn í gegn undir lok leiksins.

Hér hafa einungis verið talin upp allra helstu færin af fjölmörgum góðum tilraunum og færum í leiknum. Virkilega skemmtilegum leik lokið á Ásvöllum.

Með sigrinum færast Haukar í efsta sæti deildarinnar, allavega til morguns en þá geta Grindvíkingar hirt af þeim sætið með sigri á BÍ/Bolungarvík. Selfyssingar eru áfram í 8. sæti en fjarlægjast óðum topplið deildarinnar og hafa tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…