Sigurbjörn Hreiðars. gerir upp síðasta tímabil

HaukarSigurbjörn Örn Hreiðarsson spilandi aðstoðarþjálfari Hauka í knattspyrnu var fenginn til að fara yfir síðasta tímabil hjá Haukum sem lauk fyrir rúmlega mánuði síðan. Haukar enduðu í 3. – 5. sæti 1.deildar í ár, en liðið stefndi á að koma sér upp í Pepsi-deildina. 

Sigurbjörn lítur þó björtum augum á hlutina og fer rækilega yfir tímabilið, allt frá undirbúningstímabilinu í fyrra og fram að lokum tímabilsins. Á næstu dögum birtum við síðan svör Sigurbjörns við nokkrum spurningum sem heimasíðan lagði fyrir hann á dögunum.

En gefum Sigurbirni orðið:

Þegar upp er staðið þá eru annað árið í röð tvö lið með fleiri stig en við! Vonbrigði? Auðvitað þegar svo stutt er upp. En ef ég lít raunsætt á sumarið þá held ég að sætið sé ásættanlegt miðað við hversu lítið við skorum. Ef þú ætlar þér upp eða vinna titil þá er þumalputtareglan að þú þurfir tvö stig að meðaltali úr hverjum leik. Skora um tvö mörk og fá á þig eitt eða minna. Við vorum tölvert frá því í stigafjölda og skoruðum mörkum.  En nálægt markmiðum í mörkum fengin á okkur.

Frá því mótið kláraðist 2011 og þar til Lengjubikarinn byrjaði í febrúar þá voru sex leikmenn farnir úr byrjunarliði og Guðmundur Viðar Mete að ströggla með meiðsl sem gera sjö leikmenn. Og úr hópnum frá 2011, voru 12 leikmenn farnir. 

Miklar breytingar og við þurftum að byggja upp nýtt lið. Deildarbikarinn gekk flott. Lentum í 4.sæti sterkasta riðilsins. Öll þrjú liðin úr úrvalsdeild sem voru fyrir ofan okkur komust í undanúrslit og tvö kepptu til úrslita, þetta leit vel út. Rétt fyrir mót þá erum við komnir á gott skrið og að spila þéttan leik. 

En á þeim tímapunkti þá misstum við tvo leikmenn út sem voru okkur mjög mikilvægir. Gummi Sævars.  fótbrotnaði og Valur Fannar hætti vegna vinnu. Þetta veikti okkur til langtíma er ég klár á. Báðir með mikla reynslu sem skilar sér útí alvöru keppninnar þ.e. Íslandsmót og Bikarkeppni. Auðvitað kom Gummi tilbaka en skiljanlega ekki sami maður strax (en verður pottþétt eins og hann á að sér að vera á næsta ári). En fyrri hluti mótsins var mjög þéttur hjá okkur og langt fram í seinni umferð vorum við í 1. eða 2. sæti. Svo misstum við dampinn í seinni hlutanum og vorum ekki nógu öflugir til að fara upp. Tvö bestu liðin fóru upp.

Í bikarnum þá vorum við flottir. Slógum met með að vinna Snæfell 31-0 og duttum út fyrir úrvalsdeildarliði Fram í vítakeppni (frábær leikur af okkar hálfu).

Við þurfum að vera einbeittari á næsta ári, þurfum að verða betri sem lið, umgjörðin þarf að vera betri, áhorfendur sem mættu ekki þurfa að mæta og Haukar sem eitt öflugasta íþróttafélag landsins verður að hafa þann metnað að vera á toppnum í öllu sem félagið tekur sér fyrir hendur.

 

– Þetta hafði Sigurbjörn Örn Hreiðarsson að segja, og tökum við undir það sem hann sagði og þá sérstaklega síðustu setningarnar, setningar sem snerta marga Haukamenn og eitthvað sem við stuðningsmenn getum bætt – til að hjálpa liðinu og til að gera Hauka að enn stærra og sterkara félagi á öllum sviðum!

Fylgist með hér á Haukar.is á næstu dögum, er við birtum fleiri svör frá Sigurbirni og síðar meir, mun Jón Stefán Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna gera slíkt hið sama. 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…