Góður árangur yngri flokka í körfunni

8. fl. kvenna vann sinn riðilYngri flokkar körfunnar hafa staðið sig vel það sem af er vetri og er ljóst að það er mikil gróska í yngri flokka starfi deildarinnar og hefur árangurinn ekki látið á sér standa.

8. flokkur kvenna var að spila í B riðli í Hveragerði um helgina og gerði sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki nokkuð örugglega og munu því byrja nýja árið í A riðli. Þetta er í fyrsta skiptið sem þessar stelpur komast í A riðilinn og eru því kominn með eitt af 6 bestu liðum landsins í sínum árgangi.
Stelpurnar voru frábærar alla helgina og var mikið gleði og gaman hjá þeim. Allar stelpurnar í liðinu spiluðu og náðu allar þeim merka áfanga að skora körfu um helgina. Til hamingju stelpur með frábæran árangur.

10. flokkur drengja spilaði í fyrsta sinn í A riðli í byrjun mánaðarins og ljóst er að miklar framfarir eru hjá þessum drengjum en þeir náðu að halda sér í hópi bestu liða, unnu einn en töpuðu þrem leikjum. Allir þrír leikirnir sem töpuðust voru mjög jafnir og hefðu strákarnir með aðeins meiri reynslu úr A riðli getað náð fleiri sigrum og því má búast við þeim öflugum í næsta móti á nýju ári. Þessi flokkur er að miklu leyti strákar úr 9. flokknum en kjarninn samt öflugir drengir úr 10. flokki.

9. flokkur ætlar sér stóra hluti í vetur og ætla sér að gera harða atlögu að íslandsmeistaratitli. Í síðasta fjölliðamóti þá unnu þeir þrjá leiki en töpuðu einum, á móti KR, en KR og Haukar spiluðu úrslitaleik um titilinn í fyrra þar sem þurfti að fjórframlengja til að ná fram íslandsmeistara en því miður fyrir okkar stráka þá voru það KRingar sem unnu þann stóra síðasta vetur.

9 og 10 flokkur stúlkna unnu sig aftur upp í A riðil eftir að báðir flokkar höfðu fallið úr A riðli í fyrsta mótinu. 9. flokkur spilaði í Stykkishólmi og burstuðu alla sína leiki en það sama gerði 10 flokkur. Þær spiliðu í Hveragerði og unnu alla leiki með yfir 30 stigum.

8. flokkur drengja spilaði í fyrsta sinn í A riðli og gerðu sér lítið fyrir og náðu að halda sér uppi í A riðli en þeir sigruðu Njarðvík í leik um fallið niður í B riðil. Strákarnir hafa sýnt miklar framfarir í vetur og það er töluvert afrek að ná að halda sér uppi í A riðli í fyrstu atrennu. Munurinn á A og B riðli er alltaf nokkur og er varnarleikur liðanna í A riðli mun harðari en í hinum riðlunum.

mb. 11 ára stúlkna spila í C riðli en þær eru flestar 10 ára og spila því upp fyrir sig. Þær hafa staðið sig mjög vel og má búast við því að þessar stelpur verði öflugar á næsta ári í þessum sama flokki.

mbl. 11. ára drengja spilar í C riðli og unnu tvo leiki en töpuðu tveim og náðu því ekki að komast upp í B riðil. Nú er bara að æfa vel fyrir næsta mót og setja stefnuna upp í B riðil á nýju ári.

7. flokkur drengja er í C riðli og mun spila um næstu helgi á Egilstöðum og þar er stefnan sett upp í B riðil en þar eru nokkrir mjög efnilegir leikmenn en flokkurinn er því miður nokkuð fámennur og hefur það háð honum það sem af er vetri.

Drengja- og unglingaflokkur er sami flokkurinn og er borinn upp af ungum leikmönnum sem eru að spila stórt hlutverk í mfl. félagsins. Það hefur því verið þannig að unglingaflokkur hefur verið spilaður af yngri drengjum af mestu leyti. Drengjaflokkurinn er ríkjandi íslandsmeistari og þeir eru á góðu róli og ætla sér að verja titilinn á þessu ári. Drengjaflokkur vann um síðustu helgi KR hér á Ásvöllum með 20 stigum í 16 liða úrslitum bikars og er stefnan sett á tvöfaldan sigur í vetur.

11. flokkur drengja hefur verið í smá basli í upphafi vetrar en hafa smátt og smátt verið að stíga upp og má búast við þeim sterkum eftir áramót.

Stúlknaflokkur ætlar sér líka stóra hluti í vetur en þar eru stelpur sem eru meginuppistaða mfl. kvenna. Þær hafa verið að spila nokkuð vel og ljóst að Keflavík og Haukar munu berjast um stóru titlana í vetur. 

Unglingaflokkur kvenna spilar ekki í íslandsmótinu þar sem þær eru að spila í mfl. og var talið að álagið yrði of mikið. Þær munu samt keppa í bikarnum og þar er stefnan sett á titilinn.

 

Góður árangur yngri flokka í Körfunni

Haukar

Nú er búin önnur helgin í fjölliðamótum í körfuknattleik og eins og um síðustu helgi þá var þetta nokkuð góð helgi hjá yngri flokkunum okkar. Um helgina spiluðu 7. og 10 flokkur drengja og 9.flokkur stúlkna.

10 flokkur drengja (97 model): Þeir voru að spila í A riðli hjá KRingum og héldu sér uppi á meðal þeirra bestu. Þeir spiluðu ekki nógu vel á laugardeginum og töpuðu þá bæði fyrir Njarðvík og KR. Á sunnudeginum mættu drengirnir mun ákveðnari til leiks og tóku Fjölni í bakaríið og unnu þá með um 20 stigum. Í seinni leiknum spiluðu þeir á móti Grindavík (íslandsmeistarar) og var það jafn leikur alveg fram á síðustu sekúndu. Haukar leiddu er um 1 mín. var eftir að leiknum en náðu ekki að halda haus og töpuðu með 2 stigum. Ljóst er að þeir hafa ágæta möguleika og verður gaman að fylgjast með þeim í næstu mótum.

9. flokkur stúlkna (98 model): Þar sem við höfum aldrei verið með flokk í þessum árgangi fyrr en núna þá þurftu þær að byrja í C riðli. Allir leikirnir voru mjög auðveldir og sáust ótrúlegar tölur og unnust allir leikirnir með 70 stigum eða meira!!!!!!  Þarna erum við með flokk sem á góða möguleika á því að spila til úrslita og ná í bikara. Þær verða að vera þolinmóðar því ljóst er að B riðillinn ætti líka að vera auðveldur – ef þær spila eins og þær geta. Mikil framtíð í þessum flokki.

7 flokkur drengja (00 model): Voru að spila í B riðli og unnu alla leikina nokkuð auðveldlega ( 19 stigum og meira). Þeir eru því komnir í A riðil í fyrsta skiptið og ef þeir halda áfram að leggja sig fram og taka framförum á þessi flokkur framtíð fyrir sér og gætu farið langt. Þeir spiluðu einstaklega vel alla helgina og voru allir 11 strákarnir að spila vel í öllum leikjunum. Markmiðið að komast í A riðil náðist strax í fyrsta móti og því þarf núna að búa sig undir að spila á móti sterkum liðum í næsta móti sem verður haldið í næsta mánuði.

Drengjaflokkur (95 og 94 model): Eru búnir að keppa tvo leiki og hafa unnið báða nokkuð örugglega og eru efstir í sínum riðli. Mjög athyglisverður árangur þar sem enginn leikmaður er á eldra ári í flokknum og spila margir af 96 árganginum í þessum flokki. Næsti leikur hjá þeim er á þriðjudaginn á móti Breiðablik á heimavelli kl. 20:45 – allir að mæta og hvetja þessa efnilegu stráka.

Yngri flokkarnir hjá okkur eru að standa sig með miklum sóma og stefnan auðvitað tekin á að við verðum með flokka í A riðli í öllum yngri flokkum sem yrði einstakur árangur.

Næstu helgi spila stelpurnar í 7. flokki (A riðli) á heimavelli. Á laugardeginum í Strandgötu og á sunnudeginum á Ásvöllum. Gaman væri að sjá sem flesta mæta og hvetja þessar efnilegu stelpur áfram. Mb. 11 ára drengja er með tvö lið og þeir spila í Keflavík og í Bolungarvík. 10 flokkur stúlkna verður líka í eldlínunni í A riðli og er þar sterkur flokkur. Sömuleiðis er 9. flokkur drengja að spila um helgina í B riðli og er þar markmiðið að komast upp í A riðil.

Mikið um að vera næstu helgi og vonandi verður áframhald á þeim frábæra árangri sem hefur verið síðustu tvær helgar.

Áfram Haukar,

Ívar Ásgrímsson

yfirþjálfari yngri flokka.