Haukastúlkur lögðu stöllur sínar í Selfossi að velli í dag en leikið var á Ásvöllum. Úrslit leiksins urðu 2-1 eftir að Selfoss hafði haft forystu í hálfleik, 0-1. Góður sigur Haukastúlkna sem með sigrinum náðu 100% árangri á heimavelli á Íslandsmótinu í ár. Lokastöðuna í riðlinum má sjá hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186.
Markaskorar Hauka í dag voru þær Brooke Barbuto og Sarah Elnicky og kom mark Sarah á síðustu mínútu leiksins. Sarah skoraði markið með skalla eftir hornspyrnu.
Þó úrslit leiksins hafi ekki skipt máli varðandi lokastöðu liðanna í riðlinum þá var ljóst að bæði lið vildu ná í þrjú stig. Haukastúlkur náðu í þau með marki á lokamínútunni, öfugt við það sem gerðist í fyrri leiknum þegar heimastúlkur á Selfossi náðu að skora mark á lokamínútunni og vinna þann leik 1-0.
Næsta verkefni Haukastúlkna eru tveir leikir við FH um sæti í Pepsí -deild kvenna á næsta ári, laugardaginn 27. og 30. ágúst nk. Haukar.is munu gera þessum leikjum betri skil á næstu dögum. Sjá nánar: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24190