Meistaraflokkur Hauka leikur á laugardag við Selfoss á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 13:00.
Þetta er síðasti leikur Hauka og Selfoss í riðlinum í Íslandsmótinu og ljóst að bæði liðin hafa tryggt sér rétt til að spila um sæti í Pepsí-deild kvenna á næsta ári. Haukar munu spila tvo leiki við FH og Selfoss tvo leiki við annað hvort Keflavík eða HK/Víking og fá sigurvegarar þessara leikja keppnisrétt í Pepsí-deildinni á næsta ári.
Haukar og Selfoss hafa mæst tvisvar í sumar, fyrst í bikarleik á Ásvöllum og síðan í fyrri leik liðanna í Íslandsmótinu á Selfossi. Selfoss vann bikarleikinn 2-0 og leikinn á Selfossi 1-0 með marki á síðustu mínútu leiksins. Haukastúlkur voru síst lakari aðilinn í þessum leikjum. Það var dýrkeypt að missa leikmann út af í 20 mínútur í byrjun bikarleiksins og þrátt fyrir nokkur ágæt marktækifæri tókst Haukastúlkum ekki að skora. Í leiknum á Selfossi þóttu Haukastúlkur sýna góðan leik, verið sterkara liðið allan leikinn og fengið mörg upplögð
marktækifæri sem ekki nýttust og síðan skoraði Selfoss í blálokin gegn gangi leiksins.
Aðspurður um þennan leik sagði Heimir Porca þjálfari Hauka að hann ætlaði að hvíla leikmenn sem hafa spilað mikið í sumar þar sem framundan væru úrslitaleikir við FH. Það breytti því samt ekki að markmiðið væri alltaf að ná í þrjú stig.
Sjá hér nánar stöðuna fyrir lokaleikinn, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186
Haukar bjóða áhorfendum frítt á leiki Haukastúlkna í 1. deildinni í ár.
Um leið og við hvetjum allt stuðningsfólk Hauka til að mæta á leikinn á laugardag látum við fylgja hér með nokkrar myndir úr bikarleik Hauka og Selfoss í byrjun sumars.
Áfram Haukar!