Haukar gerðu jafntefli við Val

HaukarÞað voru 1027 manns sem fylgdust með er Haukar og Valur mættust á Vodafone-vellinum en í þetta skiptið voru Haukamenn á útivelli. Haukar léku því í bláu og byrjuðu betur því Guðjón Pétur Lýðsson átti fyrsta skot leiksins eftir tíu mínútna leik sem fór rétt framhjá.

Það var svo á 25. mínútu þar sem Haukar komust yfir með marki frá Hilmari Geir Eiðssyni eftir frábæra sendingu frá fyrirliðanum Arnari Gunnlaugssyni. Eftir það lágu Haukar aftar á vellinum og Valur sótti meira á þá. Valsarar uppskáru svo mark rétt fyrir hálfleik en þar var að verki Ian Jeffs.

Staðan var því 1-1 í hálfleik en Valsarar voru ekki lengi að minna á sig í seinni hálfleik því strax á 47. mínútu áttu þeir gott skot sem Amir Mehica, markvörður Hauka, gerði vel að verja í horn.

Haukar komust svo aftur yfir á 57. mínútu þegar Arnar Gunnlaugsson skoraði glæsilegt mark eftir flott samspil við Hilmar Rafn Emilsson. Eftir þetta mark var leikurinn meira og minna spilaður á miðju vallarins þar sem að leikmenn skiptust á að vinna boltann.

Valur náði svo að jafna á 74. mínútu. Það gerði Sigurbjörn Hreiðarsson sem potaði boltanum inn eftir misheppnað skot Valsara. Átta mínútum síðar átti Gunnar Ormslev Ásgeirsson góðan sprett upp vinstri kantinn og inn að markteig Vals þar sem hann var felldur og vítaspyrna var dæmd. Arnar Gunnlaugsson steig á punktinn og tók spyrnuna, honum brást bogalistinn en skot hans fór yfir.

Leikurinn endaði því 2-2 og var þetta sjötta jafntefli Hauka á tímabilinu. Það var greinilegt að bæting er á liðinu síðan á byrjun tímabilsins og er aðeins tímaspursmál hvenær fyrsti sigurinn dettur í hús.