Strákarnir verða að vinna á fimmtudaginn
Haukaliðið er sem stendur í neðsta sæti Pepsi-deildar með 5 stig eftir 10 leiki. Það er samt sem áður nóg eftir og þó fyrirsögnin sé „Strákarnir verða að vinna á fimmtudaginn“ er það ekki þó svo að þó þeir vinni ekki leikinn eru þeir fallnir eða neitt slíkt.
Hinsvegar bíður þeim sjósund og fleira ef þeir vinna ekki systrafélag sitt, Val á fimmtudaginn næstkomandi á Vodafone-vellinum.
Það er nefnilega þannig að fyrir leikinn gegn Fram lögðu leikmenn það undir að ef þeir næðu ekki 6 stigum eða meira úr næstu þremur leikjum gegn Fram, Fylki og Val að þá myndu þeir taka sjósund. Ef það tækist hinsvegar ættu þjálfarar og jafnvel stjórnarmenn að taka sjósund.
Nú er svo mikið að tveir af þessum þremur leikjum eru búnir og einungis 2 stig í hús svo það er ljóst að leikmenn þurfa að taka sjósundið. En þjálfarnir hafa nú breytt þessari áskorun og tekið „double-or-nothing“, það er að segja ef þeir vinna næsta leik á móti Val fá þeir enga refsingu en ef þeir tapa þurfa þeir að synda sjósund og eitthvað eitt annað sem er ekki enn búið að ákveða hvað verður.
Það verður því miklu meira en bara þrjú stig undir í næsta leik hjá liðinu, gegn Val á fimmtudaginn. Leikmenn liðsins í fyrra fóru í sjósund í fyrra og munu nokkrar vel valdnar myndir úr því birtast hér á síðunni sem fyrst.
