Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-16 ára kvennalandsliðum Íslands. Þorlákur Árnason þjálfari liðsins hefur valið hópinn.
Í U-16 eiga Haukar einn fulltrúa en það er Lára Rut Sigurðardóttir.
Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll um helgina. Um er að ræða 32 manna hóp sem valinn hefur verið.
Við óskum Láru Rut til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis á æfingunum og í framtíðinni.