Handbolti – almannaheilla reikningur

Viltu styrkja starfsemi Handknattleiksdeildar Hauka og færð um leið lækkun á útsvars- og tekjuskattsstofni. Á þetta við bæði um einstaklinga og fyrirtæki. Félagsgjöld eða greiðslur til almannaheilla félaga fyrir vörur eða þjónustu skapa ekki rétt til skattaafsláttar.

Styrktarreikningur fyrir bæði einstaklinga og lögaðila/fyrirtæki.
Reikningsnúmer: 0133-15-08811, kt.600169-0419.
Eigandi reiknings er Knattspyrnufélagið Haukar/Handbolti.

Hér fyrir neðan eru útskýringar á hvernig þetta virkar.
Einstaklingar:

Einstaklingar eiga rétt á skattafslætti þegar þeir styðja verkefni Handknattleiksdeildar Hauka.
Þetta á við um einstaka styrki og mánaðarlega styrki til Handknattleiksdeildarinnar.
Handknattleiksdeild Hauka sendir síðan upplýsingar í byrjun hvers árs um styrki til Skattsins, sem kemur upplýsingum til skila til þín. Ef þú leggur okkur lið öðlast þú rétt til skattaafsláttar í leiðinni. Stuðningur þinn er mjög mikilvægur svo hægt sé að halda uppi öflugu starfi.

Einstaklingar geta fengið skattaafslátt ef styrkupphæðin er samtals 10.000 kr. – 350.000kr. (hámark alls á hverju ári). Styrkurinn kemur til lækkunar á útsvari-og tekjuskattsstofns á almanaksári.
Dæmi um fyrirkomulag: Einstaklingur greiðir 20.000kr styrk til deildarinnar fær skattaafslátt að fjárhæð 7.600kr og greiðir í raun 12.400kr fyrir 20.000kr styrk til starfs deildarinnar. (útreikningur gera ráð fyrir meðaltekjum en tekjuskattshlutfall er breytilegt).
Hámarksupphæð hjá hjónum og sambúðarfólks sem kemur til lækkunar útsvars og tekjuskattsstofns er samtals 700.000kr á ári. Frádráttur hjóna og sambúðarfólks er ekki millifæranlegur og ber því að halda styrkjum hvers einstaklings aðgreindum.

Fyrirtæki:
Rekstraraðilum er heimill skattafrádráttur upp að 1,5% af rekstrartekjum ársins vegna gjafa til íþróttafélaga að því gefnu að íþróttafélagið sé skráð í almannaheillaskrá Skattsins, skv. 2. tölul. 31.gr laga nr 90/2003, sbr. 15.-20. reglugerðar nr. 1300/2021, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.

Dæmi um fyrirkomulag: Fyrirtæki sem styrkir Handknattleiksdeild Hauka um 1.000.000kr lækkar tekjuskattsstofn sinn um 200.000kr. Fyrirtækið greiðir því í raun 800.000kr fyrir 1.000.000kr styrk til starfsemi Handknattleiksdeildar Hauka.

Kærar þakkir fyrir stuðning við starfsemi Handknattleiksdeildar Hauka