3. flokkur Hauka Rey Cup meistari

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/rey1141.jpgÞróttur hélt sitt árlega Rey Cup mót í Laugardalnum dagana 20. – 24. júlí sl. og var þetta í 10. skipti sem mótið fer fram.

Stúlkurnar í 3. flokki Hauka, árgangar 1995 og 1996, gerðu vel á mótinu og stóðu uppi sem sigurvegarar í keppni 7 manna liða. 

Leikið var í tveimur riðlum og komust þau þrjú lið sem bestum árangri náðu í þeim áfram í keppni um sæti 1-3.  Haukastúlkur töpuðu ekki leik á mótinu, unnu fjóra leiki í riðlakeppninni og báða leikina við ÍR og Einherja í keppninni um þrjú efstu sætin á mótin. 

Haukastúlkur skoruðu samtals 22 mörk en fengu aðeins á sig 5 mörk í leikjunum sex.

Haukar.is óska stúlkunum til hamingju með árangurinn.

Áfram Haukar!

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/rey11.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/rey112.jpg