Haukar – Keflavík í Dominos deild kvenna, miðvikudaginn 30. nóvember kl. 19:15

Haukar munu frumsýna nýjan erlendan leikmann í fyrsta leiknum eftir landsleikjahlé er Keflvíkingar koma í heimsókn í Schenkerhöllina á miðvikudaginn kl. 19:15. Kelia Shelton er orðin lögleg með liðinu en auk þess hefur Þóra Jónsdóttir verið að ná sér af meiðslum og mun leika sinn fyrsta leik á þessu tímabilinu. það er því mikil eftirvænting […]

Söludagur Errea og kkd. Hauka miðvikudaginn 30. nóvember milli kl. 17:00 – 19:00

Errea og kkd. Hauka verða með söludag fyrir leik hjá mfl. kvenna á miðvikudaginn. Söludagur Hauka Næstkomandi miðvikudag 30. nóvember verður söludagur í Haukahúsinu frá klukkan 17:00 – 19:00. Seldar verða keppnistreyjur, stuttbuxur, síðbuxur, peysur, töskur og fleira. Það verða einnig seldir sérstakir stuðningsmannabolir sem allir ættu að eignast. Það er svo gaman þegar stuðningsmenn […]

Sá stóri í Haukagetraunum

Það leikur allt í lyndi hjá okkur í Haukagetraunum. Mikill áhugi og stemming ríkir alla laugardaga  í Stefánsstofu.Hér er  frétt af heimasíðu Íslenskra getrauna: „Einn stuðningsmaður Hauka var með 13 rétta  á Sunnudagsseðlinum.  Hann notaði 6 tvítryggingar sem kosta 896 krónur og sigldi örugglega heim 13 réttum sem gefa um 1, 4 milljónir króna.“ Allir […]

Haukar – Keflavík föstudaginn 25. nóv. kl. 19:15

Haukar taka á móti Keflvíkingum í Schenkerhöllinni föstudaginn 25. nóvember kl. 19:15. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en bæði lið töpuðu síðasta leik sínum. Enn og aftur hentu Haukarnir frá sér góðri stöðu og nú síðast í Ljónagryfjunni. Haukarnir voru 8 stigum yfir er um 6 min. voru eftir af síðasta leikhluta og […]

Haukastelpur á Ítalíu um helgina

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í handbolta eru komnar til Ítalíu en um helgina munu þær leika tvo leiki gegn ítalska liðinu Jomi Salerno. Ferðalagið var langt og strangt en gekk ferð þeirra þó afar vel. Þetta er í þriðja skiptið sem að kvennalið Hauka spilar í Evrópukeppni er fyrri skiptin voru tímabilin 2005 – 2006 […]

Hörkuleikur í Schenkerhöllinni

Það er enn einn stórleikurinn sem biður strákanna í meistaraflokki í handbolta á morgun, fimmtudag, þegar að liðið fær Selfoss í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Liðin eru fyrir umferðina í 3. og 4. sæti með 12 stig en það eina sem skilur liðin að er fyrri leikur þessara liða sem Haukar unnu 34 – […]