Þriðja tapið staðreynd – vörnin hriplek

Haukar tóku á móti Stjörnunni í kvöld í Iceland Express-deild karla. Hlutskipti þessa liða er búið að vera mjög ólíkt á tímabilinu. Stjörnumenn búnir að landa sigri í fyrstu tveimur leikjum sínum í Iceland Express-deildinni. Haukar komnir með tvö töp eftir fyrstu tvær umferðirnar. Því miður fyrir okkar menn var engin breyting á í kvöld. […]

Actavís og Haukar endurnýja styrktarsamning

Actavis og Körfuknattleiksdeild Hauka endurnýja samning Fyrir leik Hauka og Snæfells í m.fl. karla var endurnýjaður samningur milli Actavís og Körfuknattleiksdeildar Hauka. Actavís hefur undanfarin 7 ár verið aðalstyrktaraðili deildarinnar.  Í kjölfar góðs árangurs Hauka á síðasta ári ákvað Actavís að auka enn stuðning sinn við það uppbyggingar starf sem unnið er innan Körfuknattleiksdeildar Hauka […]

Tap gegn Njarðvík

Það var sprækt lið Njarðvíkur sem að sigraði leik Njarðvíkur og Hauka í IE-deildinni í gærkvöld 107-91. Leikurinn var jafn framan af en undir lok annars leikhluta tóku Njarðvíkingar öll völd á vellinum með Cameron Echols fremstan í flokki og annað tap Hauka í röð staðreynd. Fyrirfram var búist við hörku leika enda liðin áþekk […]

Fréttatilkynning

Ólafur Jóhannesson  ráðinn þjálfari meistaraflokks karla og Jón Stefán Jónsson þjálfari meistarflokks kvenna hjá Haukum Í dag skrifa Ólafur Jóhannesson og Haukar undir 3ja ára samning þar sem Ólafur tekur við þjálfun meistaraflokks karla. Ólafur er vel þekktur enda þjálfað víða, nú síðast karlalandslið Íslands. Með Ólafi kemur mikill reynslubolti til liðsins en Sigurbjörn Örn […]

Magnús Gunnarsson ráðinn framkvæmdastjóri Hauka

Heimir Heimisson, framkvæmdastjóri Hauka, lét af störfum um síðastliðin mánaðamót. Magnús Gunnarsson hefur verið ráðinn í hans stað. Magnús er Hafnfirðingum og þá ekki síst Haukamönnum að góðu kunnur en hann var bæjarstjóri á árunum 1998-2002 og hefur gegn ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars fyrir Hauka. Magnús hefur setið í stjórn Rekstrarfélags Hauka undanfarin ár og […]

Konukvöld Hauka 22. október n.k.

Hvað er skemmtilegra en snilldarkonur í stuði og stemningu á Ásvöllum? Munið Konukvöld Hauka 22. október næstkomandi.Miðasala og borðapantanir frá og með 10. til 18. október. Hlökkum til að sjá ykkur allar. Nefndin. ATH: Smellið á auglýsinguna til að stækka hana. Áfram Haukar!                    

Haukar mæta Njarðvík í kvöld

Baráttan heldur áfram í IE-deild karla en í kvöld halda Haukamenn til Njarðvíkur og etja kappi við heimamenn. Haukar áttu fínan leik gegn Snæfelli í fyrstu umferðinni á föstudaginn og voru í raun klaufar að sigra ekki þann leik. Njarðvík fór vel af stað og sigraði Val mjög svo örugglega. Leikurinn hefst kl. 19:15 í […]

Gott Haukalið áttu tvö stig skilið í kvöld

Strákarnir hófu tímabilið í kvöld í Iceland Express-deildinni í körfubolta þegar þeir tóku á móti Snæfelli frá Stykkishólmi. Leikurinn var hin mesta skemmtun en mikil spenna var í leiknum og t.a.m. skiptust liðin 21 sinnu á forustunni. Eftir frábæran leik féll sigurinn ekki með okkar mönnum sem máttu þola ósanngjarnt tap. Lokatölur leiksins voru 89-93 […]