Þriðja tapið staðreynd – vörnin hriplek

Emil Barja í leiknum gegn Stjörnunni í kvöld - mynd: karfan.isHaukar tóku á móti Stjörnunni í kvöld í Iceland Express-deild karla. Hlutskipti þessa liða er búið að vera mjög ólíkt á tímabilinu. Stjörnumenn búnir að landa sigri í fyrstu tveimur leikjum sínum í Iceland Express-deildinni. Haukar komnir með tvö töp eftir fyrstu tvær umferðirnar. Því miður fyrir okkar menn var engin breyting á í kvöld. Stjörnumenn unnu öruggan sigur 68-89 þar sem Jovonni Shuler var stigahæstur Haukastráka með 22 stig.

Fyrstu mínútur leiksins var jafnræði með liðunum. Liðin skiptust á körfum. En í stöðunni 13-11 Haukum í vil kom góður kafli frá gestunum úr Garðabæ þar sem þeir skoruðu 11 stig í röð og breyttu stöðunni í 13-24. Eftir það náðu Haukar aldrei að minnka muninn að ráði og Stjörnumenn gengu á lagið og lönduðu þægilegum sigri.

Haukaliðið getur mun meira heldur en það sýndi í kvöld en lánleysið eltir strákana en boltinn virðist ekki skoppa með okkar mönnum.

Lykillinn að því að ná betri úrsitum er að þétta vörnina en hún var eins og gatasigri í kvöld og það gengur ekki gegn jafn sterku liði og Stjörnumenn hafa á að skipa.

Jovonni Shuler var stigahæstur í kvöld með 22 stig en hann var nálægt þrennunni alræmdu. Ásamt stigunum 22 tók hann 11 fráköst, gaf 7sjö stoðsendingar og stal fimm boltum.

Steinar Aronsson kom öflugur inn af bekknum en hann setti 10 stig ásamt því að berjast af krafti í vörninni.

Haukar eiga Fjölni næsta mánudag í Lengjubikarnum og hvetur heimasíðan alla að mæta og styðja strákana.

Tölfræði leiks

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…