Haukagolf 2002

Golfmót Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldið föstudaginn 30. ágúst nk. á hinum glæsilega golfvelli Keilis á Hvaleyrinni. Ræst verður út milli klukkan 11.00 og 15.00, og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega. Hægt er að bóka rástíma á netinu á www.golf.is eða í síma 565-3360. Keppnisgjald er kr. 2.000,00. Aldurstakmark er 16 ára og eldri. […]

Haukagolf

Ágætu félagar, hið árlega Haukamót í golfi verður haldið á golfvellinum á Hvaleyri föstudaginn 30. ágúst nk. Nánar auglýst síðar.

Nýir leikmenn til mfl.kvenna

Mfl. kvenna hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi vetur. Þetta eru þær Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir frá FH, Björk Tómasdóttir, skytta úr Fram og Lukrecija Bokan (Lucia), markmaður frá Króatíu. Við bjóðum þær velkomnar í hópinn og án efa eiga þær eftir að styrkja liðið okkar, þ.e. “druslurnar okkar”, hina frábæru Deildar- og Íslandsmeistara 2002. Velkomnar […]

Haukar til Kýpur

Strákarnir fara til Kýpur í október í Evrópukeppni bikarhafa. Þeir fá liðið Youth Union Strovolos í heimsókn 5-6 október og spila ytra helgina eftir. Þetta verður að teljast góður dráttur fyrir Haukana bæði uppá ferðakostnað og eins með tilliti til möguleika á áframhaldandi þáttöku.