Flugeldasala Hauka 20% afslátt

Eins og undanfarin ár eru hinar vinsælu flugeldaávísanir til sölu hjá Handknattleiksdeild Hauka. Ávísanirnar verða til sölu í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum : Föstudaginn 28. desember kl. 10.00-20.00 Laugardaginn 29. desember kl. 10.00-20.00 Sunnudaginn 30. desember kl. 10.00-20.00 Við viljum benda á að flugeldaávísanirnar sem fást á 1.000 krónur gilda sem úttekt á flugeldamörkuðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar […]

Vikingur-Haukar mfl.ka.

Haukar hófu titilvörnina með öruggum og sannfærandi sigri 28-21 á Víkingi í Víkinni í gærkvöldi. Ekki er hægt að segja að strákarnir hafi átt góðan leik, töluvert um mistök, en sigurinn var þó aldrei í hættu.

Breytingar

Heimasíðan hefur nú verið tekin niður og mun opna aftur seinnipart sumars, en þangað til mun þetta líta svona út og vonandi mun verða eitthvað af fréttum………. 🙂

Evrópukeppnin

Evrópukeppnin Haukar hafa samið við Pólverjana í KS Strzelec-Lider Market og verða báðir leikirnir spilaðir hér heima. Fyrri leikurinn verður laugardaginn 13. okt. kl. 16.30 og seinni leikurinn sunnudaginn 14. okt. kl. 20.00

Óskar kominn heim

Óskar Ármannsson hefur verið ráðinn þjálfari 2., 3. og 4.fl.karla. Við bjóðum hann velkominn til starfa og vitum að hann á eftir að gera góða hluti með þessa stráka. (Aldrei að vita nema hann taki líka fram skóna að nýju og spili úrslitaleikinn!!!)

Sjallamótið 2001

Eins og alþjóð veit þá tóku Haukastrákarnir þátt í Sjallamótinu á Akureyri nú um helgina. Þeir enduðu í öðru sæti á eftir heimamönnum í KA. Leikirnir voru fimm og eru úrslitin svohljóðandi: Haukar – ÍR 16 : 13 Þór – Haukar 14 : 17 Grótta/KR – Haukar 17 : 12 Haukar – Víkingur 21 : […]

Í upphafi tímabils ……..

Nú er handboltavertíðin loksins að fara af stað. Strákarnir eiga fyrsta leik á morgun, miðvikudag kl. 20.00 við Víking í Víkingsheimilinu. Fyrsti leikur í deildinni hjá stelpunum er fyrir norðan við KA/Þór 3.október. Þær taka þó forskot á sæluna á fimmtudaginn kl. 20.00 og spila við ÍBV um titilinn “Meistari meistaranna”. Margir áhorfendur bíða sjálfsagt […]

Haukar eru bestir !!!

Á fréttamannafundi HSÍ í gær, spáðu fulltrúar félaga í 1.deild karla og kvenna um lokastöðu á komandi leiktímabili. Fáum kom á óvart að okkur Haukum er spáð 1. sæti, bæði karla og kvenna. En spá er bara spá, enginn leikur er unninn fyrirfram og titlarnir engan veginn öruggir í húsi. Það er þó alveg á […]

Jólakveðja

Sendum öllum Haukum nær og fjær sem og öðrum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Þökkum stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.