100% árangur á heimavelli í Íslandsmótinu

 images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/self- mynd to.jpgHaukastúlkur lögðu stöllur sínar í Selfossi að velli í dag en leikið var á Ásvöllum.  Úrslit leiksins urðu 2-1 eftir að Selfoss hafði haft forystu í hálfleik, 0-1. Góður sigur Haukastúlkna sem með sigrinum náðu 100% árangri á heimavelli á Íslandsmótinu í ár. Lokastöðuna í riðlinum má sjá hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186.

Markaskorar Hauka í dag voru þær Brooke Barbuto og Sarah Elnicky og kom mark Sarah á síðustu mínútu leiksins.  Sarah skoraði markið með skalla eftir hornspyrnu.

Þó úrslit leiksins hafi ekki skipt máli varðandi lokastöðu liðanna í riðlinum þá var ljóst að bæði lið vildu ná í þrjú stig. Haukastúlkur náðu í þau með marki á lokamínútunni, öfugt við það sem gerðist í fyrri leiknum þegar heimastúlkur á Selfossi náðu að skora mark á lokamínútunni og vinna þann leik 1-0.

 

Næsta verkefni Haukastúlkna eru tveir leikir við FH um sæti í Pepsí -deild kvenna á næsta ári, laugardaginn 27.  og 30. ágúst nk.  Haukar.is munu gera þessum leikjum betri skil á næstu dögum.  Sjá nánar: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24190

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/self mynd to.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 10.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 11.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 25.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 26.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/haukar-self myndir to 28.jpg

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…