10. flokkur stúlkna meistari

10. flokkur stúlkna er meistari í 2. deild

Úrslitaleikir Íslandsmóts yngri flokka KKÍ standa nú yfir og í kvöld urðu stelpurnar í 10. flokki meistarar í 2. deild er þær lögðu Grindavík að velli 54-46.

Í lok leiks var valin leikmaður leiksins og var það Halldóra Óskarsdóttir, leikmaður Hauka, sem var valin. Var hún með 20 stig og 19 fráköst í leiknum.

Til hamingju Haukar.