Þorvaldur Már Guðmundsson með 3. ára samning

S.l föstudag skrifaði Þorvaldur Már Guðmundsson framherji undir 3 ára samning við okkur Haukamenn.
Þorvaldur er 27 ára gamall, hefur leikið með Aftureldingu undanfarin ár og Víkingi síðasta sumar. Haukar eru mjög ánægðir með að
fá Þorvald (Þorra) til liðs við félagið, bjóða hann velkominn og vænta mikils af honum.

Á myndinni má sjá Sigríði Kristjánsdóttur formann meistaraflokksráðs, Þorvald og Pál Guðmundsson formann knattspyrnudeildar, handsala samninginn.