Öruggur sigur á Tindastól

Haukarimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 15.jpgHaukastúlkur léku við Tindastól á Ásvöllum í gærkvöldi. Sigur vannst, 5-0, sem eru sömu úrslit og í fyrri leik liðanna á Sauðárkróki eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3-0.  Markaskorarar Hauka í leiknum voru þær Lovísa Einarsdóttir með tvö fyrstu mörkin, Sarah Elnicky með það þriðja með skalla og í síðari hálfleik skoruðu þær Kristín Ösp Sigurðardóttir og Marcela Franco og var mark Marcela úr vítaspyrnu. 

Eins og úrslit leiksins gefa til kynna var um ójafnan leik að ræða. Tindastólsstúlkur eiga hins vegar hrós skilið fyrir baráttuna og að gefast aldrei upp þó á móti blési. Þá átti markvörður gestanna mjög góðan leik og varði oft vel.

Í spjalli við haukar.is eftir leik sagði Heimir Porca þjálfari Hauka að sigurinn á Tindastól hafi verið ákveðinn skyldusigur þar sem norðanstúlkur hefðu aldrei séð til sólar í leiknum. Hann sagði sigurinn hafa verið síst of stóran þar sem Haukastúlkur hefðu farið illa með mörg góð marktækifæri.

Heimir sagði stutt í næsta leik sem væri við Fram miðvikudaginn 27. júlí næstkomandi á Framvellinum og að Framstúlkur væru sýnd veiði en ekki gefin. Framstúlkur væru að koma sterkar inn á lokasprettinum og gerðu í gærkvöldi jafntefli við Völsung á Húsavík.  Mínar stelpur í Haukum verði því að vera einbeittar og að nýta færin betur svo engin áföll verði í vegi Haukastúlkna að settu marki sem væri að komast í úrvalsdeild að nýju sagði Heimir í lok spjallsins. 

Úrslit í öðrum leikjum í gærkvöldi í B riðli 1. deildar urðu þau að Fjölnir og Selfoss gerðu 1-1 jafntefli og sömu úrslit urðu í leik Völsungs og Fram á Húsavík. Haukastúlkur hafa með sigrinum í gærkvöldi minnkað forskot Selfoss á toppi riðilsins en stöðuna og næstu leiki má sjá hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186.

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 159.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 161.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 87.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 147.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 1.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 167.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 106.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/myndir . 22.7.2011 haukar - tindastll 5-0 9.jpg