Íris og Margrét Rósa valdar í A-landsliðshóp

Þær Íris Sverrisdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir voru s.l. fimmtudag valdar í æfingahóp fyrir A-landslið kvenna sem taka mun þátt í Norðurlandamótinu á næstkomandi vori. Þær hafa spilað mjög vel fyrir Hauka á þessu keppnistímabili og verið burðarrásar í liði Hauka sem unnið hefur sig upp í fjórða sæti Iceland Express deildarinnar eftir erfiða byrjun.  

 

Þær Íris og Margrét Rósa eru vel að valinu komnar og óskar heimsíða þeim góðu gengi á æfingum landsliðsins nú um jólin.

 

Haukar eiga fleiri fulltrúa í landsliðinu en Helena Sverrisdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir sem báðar leika erlendis um þessar mundir voru að sjálfsögðu valdar í landsliðshópinn og óskar heimasíðan þeim einnig góðs gengis á landsliðsæfingunum um jólin.