Haukar B – Breiðablik í kvöld: Í beinni á Haukar TV

Haukar B spila gegn Breiðablik í kvöld í 32- liða úrslitum Poweradebikarsins. Leikið verður í Schenkerhöllinni kl. 20:00 og frítt inn.

Haukar B hafa ekki farið jafn vel af stað í deildinni eins og vonir bundu við en liðið sýndi mikinn karakter þegar að það vann tvöfalda meistara Stjörnunnar B í síðast leik. Breiðablik leikur í 1. deildinni og situr sem stendur í 4. sæti.

Það má með sanni segja að reynslan mæti ungdómnum í þessum leik en með liði Hauka eru reynslumiklir naglar sem hafa leikið ófáa meistarflokkleikina.

Allir á völlinn í kvöld.

Áfram Haukar…B