Valur Fannar Gíslason og Magnús Páll ganga í raðir Hauka

Magnús Gunnarson framkv.stj. Hauka, Valur Fannar Gíslason, Jón Björn Skúlason form. knattspyrnud. og Óli Jó þjálfari mfl. karla.

Magnús Gunnarson framkv. stj. Hauka, Magnús Páll Gunnarson og Jón Björn Skúlason formaður knattspyrnudeildar.Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá samningi við Val Fannar Gíslason og Magnús Pál Gunnarsson um að þeir leiki með félaginu.
Valur Fannar hefur verið einn helsti máttarstólpi Fylgis og  fyrirliði liðsins  undanfarin ár. Valur Fannar hefur ýmist leikið sem varnar eða miðjumaður og Haukar vænta mikils af honum á næstu árum.

Valur Fannar: „Ég er  mjög spenntur fyrir þessari áskorun og þeim krafti sem ég hef fundið fyrir hjá Haukum.  Markmið  okkar Hauka eru skýr,  við ætlum okkur stóra hluti og að sjálfsögðu er stefnan sett á að fara  upp í úrvalsdeild á næsta tímabili“.

Óli Jó, þjálfari Hauka: „Það er frábært að fá Val Fannar til liðs við okkur.  Hann mun klárlega styrkja lið Hauka verulega og reynsla hans mun vega þungt í markmiðum okkar að fara upp í úrvalsdeild“.  

Magnús Páll: „Ég hlakka til að leika með Haukum og vona að ég eigi eftir að leggja mitt af mörkum til þess að félagið komist upp í úrvalsdeild. Ég er ánægður með þann mikla metnað sem ég finn hjá stjórnendum og ég treysti þjálfaranum og aðstoðarmanni hans til að finna réttu leiðirnar til árangurs”.

Ólafur Jó, þjálfari Hauka: „Það er mikill fengur að Magnúsi í okkar herbúðum. Hann er góðu framherji með góða skallatækni og bronsskórinn sem hann fékk árið 2007 og 23 mörk í 23 leikjum á síðasta keppnistímabili í Þýskalandi segja sitt um styrkleika hans“.

Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild: Nánari upplýsingar: Magnús Gunnarsson, sími 665-8910, magnus@haukar.is

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…