Víkingur – Haukar

Víkingur Reykjavík – Haukar, miðvikudag klukkan 20.00.

Haukarnir munu heimsækja Víking Reykjavík á morgun í Víkinni. Þetta er afar mikilvægur leikur fyrir strákana og afar mikilvægt að Haukafólk fjölmenni og styðji við bakið á strákunum.

Ekki hefur gengið eins og flestir vildu í síðustu leikjum en strákarnir eru ákveðnir að snúa við blaðinu.

Víkingar eru í 5.sæti deildarinnar, 3 stigum á eftir okkar mönnum sem eru í 4.sæti.

Allir á völlinn, ÁFRAM HAUKAR!