Útkall til Grindavíkur. Grindavík – Haukar kl. 19:15 í Grindavík í kvöld

haukar kvennaHaukastelpur fara til Grindavíkur í kvöld, föstudag, og munu leika fjórða leik sinn í undanúrslitum Dominos deildar kvenna. Haukar eru undir í einvíginu 2-1 og þurfa sigur í kvöld til að eiga möguleika á því að komast í úrslitaeinvígið.

Haukar spiluðu stórkostlegan leik í síðasta leik þessara liða og unnu öruggan sigur. Nú þarf liðið anna eins leik til að knýja fram oddaleik í Schenkerhöllinni. Vörnin þarf að vera grimm og stelpurnar ákveðnar í sínum sóknarleik, þær þurfa að halda áfram að spila þann leik sem gaf þeim sigur í síðasta leik. Gleðin þarf að vera til staðar.

Við hvetjum Haukafólk til að fjölmenna suður með sjó í kvöld og hjálpa stelpunum í baráttunni. Leikurinn hefst kl. 19:15 og það þarf að mæta tímanlega.

Áfram Haukar.