Stórleikur á laugardag kl. 17:00. Þriðji leikur Hauka – Tindastóls

Serían mifinnurlli Hauka og Tindastóls á eftir að vera rosaleg, en Tindastóll jafnaði einvígið í síðasta leik liðanna. Leikurinn endaði 69-68 og staðan í einvíginu er því jöfn 1-1.

Næsti leikur liðanna er á Ásvöllum, á besta tíma, og nú er um að gera að fjölmenna. Leikurinn hefst kl. 17:00 og því engin ástæða fyrir því að mæta ekki á þessa stórgóðu skemmtun með alla fjölskylduna með sér hvort sem umræðir aldna eða unga.

Miðasalan opnar kl. 15.00 sama dag og er sem fyrr staðsett inn á Ásvöllum og grillið verður að sjálfsögðu rifið fram um kl. 16.00 fyrir borgarana.