Úrslitin ráðast í Dominos deild kvenna í kvöld í Schenkerhöllinni

haukar kvennaHauka stúlkur mæta Snæfelli í fimmta leik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld, þriðjudaginn 26. apríl, kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Allar fjórar fyrri viðureignir þessara liða hafa unnist á heimavelli og því má telja að heimamenn hafi gott forskot í leiknum í kvöld. Aftur á móti þarf gleðin og baráttan að vera til staðar til að leggja sterkt lið Snæfells að velli í kvöld.

Stelpurnar eru vel stemmdar og ætla að mæta brjálaðar til leiks og tryggja sér titilinn á heimavelli.

Nú þurfa allir Haukamenn og Hafnfirðingar að mæta á völlinn í kvöld og hvetja stelpurnar okkar til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Seldir verða hamborgarar fyrir leik og því hvetjum við fólk til að mæta snemma. Frábær stemning hefur verið á heimaleikjum Hauka í úrslitakeppninni og nú er hún að ná hámarki.

Áfram Haukar.