Björgvin Stefánsson gengur til liðs við Val

bjorgvin

Björgvin mun áfram spila í rauðu í sumar þó hann færi sig um set.

Knattspyrnudeild Hauka og Knattspyrnudeild Vals hafa komist að samkomulagi þess efnis að Björgvin Stefánsson, leikmaður meistaraflokks Hauka, gangi til liðs við Val og spili með liðinu í Pepsí deildinni á komandi tímabili. Björgvin fer á láni til Vals sem hefur kauprétt á honum eftir tímabilið.

Knattspyrnudeild Hauka óskar Björgvin góðs gengis á komandi sumri með Val í Pepsí deildinni.

Fyrir fjölmiðla:
Frekari upplýsingar veitir Halldór Jón Garðarsson, fjölmiðlafulltrúi Knattspynudeildar Hauka, í síma 898-5738.