Umfjöllun um Hauka í Morgunblaðinu

Í morgunblaðinu í dag er fjallað um nýliða Hauka í Iceland Express-deildinni. Er þetta liður Morgunblaðsins í kynningum á liðunum sem leika munu í IE-deildinni í vetur.

Í blaðinu eru viðtöl við bæði Örn Sigurðarson og Pétur Ingvarsson og segir Pétur að liðið ætli að standa sig varnarlega í vetur. 

„Við höfum ekki sett nein markmið hvað varðar sæti í deildarkeppninni. Eitt af markmiðum okkar er að vera eitt besta varnarlið deildarinnar og ég tel okkur vera í stakk búna til þess að ná því,“ segir Pétur í samtali við Moggann og Örn lofar loftfimleikum.

„Ég get alveg lofað stuðningsmönnum Hauka að það verður boðið upp á risatroðslur í leikjum okkar í vetur. Ég get alveg tekið nokkrar og síðan er hann Semaj Inge alveg rosalegur í troðslunum. Hann bauð Gerald Roinson velkominn á fyrstu æfingunni og tróð alveg hrikalega í „andlitið“ á Gerald. Ég get eiginlega alveg lofað nokkrum slíkum troðslum frá okkur í vetur.“

Restina af umfjöllun má lesa á síðu 4 í íþróttafréttum Morgunblaðsins.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…