Telma og Guðrún skrifa undir

Telma Björk Fjalarsdóttir og Guðrún Ámundadóttir skrifuðu undir samninga við körfuknattleiksdeild Hauka í gær.

Telma var að endurnýja sinn samning við félagið en Guðrún er að snúa aftur til Hauka eftir smá stopp hjá KR þar sem hún lék með systur sinni Sigrúnu. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem þær systur spila ekki saman en Sigrún gekk til liðs við Hamar fyrir tímabilið.

Erlendi leikmaður Haukakvenna, Heather Ezell er svo komin til landsins og mun mæta á sína fyrstu æfingu í dag.

Mynd: Telma og Guðrún skrifa undir með Samúel Guðmundssyni formanni kkd. Hauka