Henning: Þær munu bíta frá sér

Haukar mæta Njarðvík á föstudaginn í fyrstu umferð Powerade-bikarsins. Spilað verður á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19:15.

Njarðvík kom upp í efstu deild fyrir þessa leiktíð og er nokkuð óskrifað blað en hafa þó fengið til sín leikmenn sem hafa þónokkra reynslu að baki.

Ég veit nákvæmlega hversu sterkar UMFN stelpurnar eru og þær hafa bætt við sig reynslumiklum leikmönnum og munu án efa bíta frá sér.  Þó svo að Haukaliðið sé ekki fullskipað enn sem komið er þá ætlum við okkur að sjálfssögðu áfram í þessari keppni sagði Henning Henningsson þegar hann var spurður út í Njarðvíkurliðið.

Haukar duttu úr leik í undanúrslitum á síðasta ári þegar þær töpuðu fyrir Keflavík en fyrir höfðu þær sigrað Val í undanúrslitum.