Tap hjá Haukastelpum

Deildarmeistarar Hauka töpuðu lokaleik sínum í Iceland Express-deild kvenna fyrr í kvöld þegar þær heimsóttu Keflvíkinga.

Haukar töpuðu með 21 stigi 71-50 og áttu erfitt uppdráttar allt kvöldið. Leikurinn hafði engin áhrif á lokastöðuna en Haukar og Keflavík verða sem fyrr í 1. og 2. sæti í deildinni.

Nú hefst forkeppni að úrslitakeppninni en Haukar sitja hjá ásamt Keflavík og því stelpurnar verðskuldað frí.

Stigahæst hjá Haukum í kvöld var Monika Knight með 11 stig.

Spennandi verður að sjá hvaða lið Haukar fá í undanúrslitum sem hefjast eftir hálfan mánuð.

Umfjöllun og myndir úr leiknum er á Karfan.is

Mynd: Kristrún Sigurjónsdóttir var ekki að finna sig í kvöld og skoraði aðeins 6 stigstefan@haukar.is