Stuðnings- og skemmtikvöld meistaraflokks Hauka

HaukarÁ föstudaginn næstkomandi, 18.mars fer fram Stuðnings- og skemmtikvöld meistaraflokks karla í knattspyrnu á skemmtistaðnum Players í Kópavogi. 

Um er að ræða lið í fjáröflun liðsins sem og auðvitað hitting fyrir alla Haukara og aðra sem tengjast liðinu og félaginu á einn eða annan hátt. Dagskráin er fjölbreytt og munu landsþekktir einstaklingar kíkja á svæðið og skemmta, kvöldinu lýkur síðan á Júlla Diskó.

Með því að lesa meira er hægt að sjá ítarlegra hvað um er að ræða. Annars hvetjum við alla Haukamenn og konur til að fjölmenna á Players á föstudagskvöldið og bæði styrkja strákana sem og að hafa gaman í góðra vina hópi.  

Síðan minnum við á leik Hauka og Þróttar í Lengjubikarnum sem fram fer á morgun, fimmtudag í Egilshöllinni klukkan 21:00 en þar mun nýráðinn þjálfari liðsins, Magnús Gylfason stjórna að alvöru sínum fyrsta leik með liðið.

 

Tilkynning frá meistaraflokknum varðandi Skemmti- og stuðningsmannakvöld Hauka:

 

Hvar? Players Kópavogi
Hvenær? Föstudagskvöldið 18.mars 
Húsið opnar kl: 20.00
Hvað kostar? Skitnar 1500 kr. 

Kæru stuðningsmenn og vinir. Föstudagskvöldið 18.mars verður kvöldið sem allir munu muna eftir. Þá verður STUÐNINGSMANNA- og SKEMMTIKVÖLD meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Haukum. 
Öllum sem finnst gaman að skemmta sér með fallegu fólki eru velkomnir á svæðið.
Veislustjóri mun sjá um að halda uppi fjörinu en dagskráin verður ekki af verri endanum!!

Á dagskrá verður;

Pub Quiz

Happdrætti þar sem þú gætir unnið utanlandsferð, treyjur af heimsþekktum 
fótboltasnillingum og margt fleira!!

Pétur Jóhann mætir á svæðið og segir nokkra vel valda brandara

JÚLLADISKÓ

Góð tilboð verða á barnum auk þess sem hægt verður að panta sérstaka Haukaborgara! 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…