Stjarnan fór með öll stigin úr Schenker-höllinni

Arryon Williams var með 15 stig og 8 fráköstHaukar tóku á móti Stjörnunni á fimmtudagskvöld í Reykjanesmóti karla. Eftir jafnan fyrsta leikhluta þar sem Stjarnan leiddi með aðeins fjórum stigum áttu Haukar í miklum vandræðum í öðrum leikhluta. Stjarnan keyrði upp muninn og leiddi í hálfleik 29-52.

Strákarnir gerðu heiðarlega tilraun í seinni hálfleik til að minnka muninn og unnu t.a.m. bæði þriðja og fjórða leikhluta. En forskot gestanna var of stórt og unnu þeir 15 stiga sigur 70-85.

Stigahæstur hjá Haukum var Haukur Óskarsson með 20 stig og Arryon Williams var með 15 stig. Emil Barja daðraði við þrennuna með sjö stig, níu fráköst og níu stoðsendingar.

Stigahæstur hjá Stjörnunni var hinn 17 ára gamli Dagur Kár Jónsson með 20 stig.