Gengið hefur verið frá samningi við Birgi Rafn Birgisson til tveggja ára. Birgir Rafn er okkur Haukum að góðu kunnur en hann á yfir 100 leiki með mfl. okkar. Sl. sumar lék hann með HK en hefur nú snúið heim. Haukar bjóða hann velkominn aftur og á hann eftir að styrkja okkar unga og góða hóp á komandi tímabili. Samningurinn gildir til tveggja ára.