Powerade-bikarinn: Haukar-b fá heimaleik – mæta Kötlu

Í gær var dregið í 64-liða úrslit Powerade-bikars karla. Haukar-b fengu heimaleik gegn Kötlu frá Vík í Mýrdal en leikið verður 11.-14. nóvember.

Lið í Iceland Express-deild karla og 1. deild karla fara beint í 32-liða úrslit og því er A-lið Hauka komið í 32-liða úrslitin.

 

Eftirfarandi lið drógust saman:
Laugdælir-KR-b
Álftanes-Fjölnir-b
Stjarnan-b-Augnablik
Haukar-b-Katla
Leiknir-Reynir Sandgerði
KV-Víkingur Ólafsvík
Mostri-Valur-b
Tindastóll-b-Patrekur
Njarðvík-b-Bolungarvík

ÍBV situr hjá og fer beint í 32-liða úrslit ásamt félögum í Iceland Express-deild karla 1. deild karla.