Næstu heimaleikir í fótboltanum.

mflkvk_mflkkHaukar mæta liði Augnabliks í B riðli 1. deildar kvenna í kvöld, og fer leikurinn fram á Ásvöllum kl. 19:00.

Okkar stúlkur eru sem stendur í 2. sæti riðilsins með 24 stig en Augnablik er í þriðja sæti með 20 stig.

Um er að ræða næst síðasta heimaleik okkar stúlkna í B riðlinum í sumar og búast má við mikilli baráttu og því er mikilvægt að Hauka-fólk fjölmenni á Ásvelli og hvetji liðið til sigurs.
Á fimmtudag taka svo strákarnir á móti Þór frá Akueyri á Ásvöllum og hefst sá leikur kl. 18:15 – meira um það síðar.


Áfram Haukar!!!