Nýr leikmaður tilkynntur í dag

HaukarMeistaraflokkur karla í knattspyrnu kom heim frá Spáni í nótt eftir viku æfingarferð á staðnum, Costa Ballena. Liðið æfði vel alla ferðina en engir æfingaleikir voru spilaðir að þessu sinni.

Haukar eiga tvo leiki eftir í Lengjubikar karla, gegn Þrótti R. 12.apríl og síðan gegn BÍ/Bolungarvík en ekki er komin dagsetning á þann leik en sá leikur var frestaður vegna veðurs fyrr á árinu.

Stórfrétt dagsins hlýtur þó að vera að í dag verður tilkynntur nýr leikmaður Hauka, Haukar.is náðu tali á Ólafi Jóhannessyni nú í morgunsárið þar sem hann tilkynnti frá þessum tíðundum,

 ,,Eftir langar viðræður við þennan leikmann höfum við loks komist að niðurstöðu og mun hann skrifa undir eins árs samning við félagið í dag og með möguleika á framlengingu um eitt ár ef Haukum tekst að komast upp um deild,“ sagði Ólafur Jóhannesson.

 ,,Við ætluðum að vera búnir að ganga frá þessu en þetta tafðist vegna æfingarferðarinnar hjá Haukum,“ sagði hann ennfremur en hann vildi ekki gefa upp að svo stöddu hver leikmaðurinn væri,

 ,,Við höfum náð að halda þessu leyndu og ætlum því að reyna gera það fram að fréttamannafundinum sem verður klukkan 16:00 í dag í veislusalnum að Ásvöllum þar sem öllum Haukamönnum er velkomið að mæta. Eina sem ég get sagt er að hann hefur gríðarlega reynslu, og hefur spilað í fjölda ára erlendis bæði í Skandinavíu sem og á Englandi. Hann á einnig að baki landsleiki fyrir Íslands hönd,“ sagði hinn geðþekki Ólafur að lokum.

Við hvetjum því allt Haukafólk að mæta í DB Schenkerhöllina klukkan 16:00 í dag og vera viðstödd undirskirft á nýjum leikmanni Hauka.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…