Nýjustu fréttir af Bónusmóti
Ég vil benda ykkur á að lesa fyrri fréttir um Bónusmót til að spara mér að senda einka tölvupósta til þeirra sem spyrja spurninga sem búið er að svara í fréttum að framan:)
Reikningsnúmer 6. flokks karla er að finna á svæði 6. flokks karla á haukar.is undir liðnum foreldrafélag
Sunnudagur 4. júní:
6. flokkur karla (leiktími: 2 x 8 mínútur)
Í 6. flokki karla er keppt í fjórum riðlum. Leikin er einföld umferð og fá lið í A- og B-riðlum 6 leiki en lið í C- og D-riðlum 5 leiki. Riðlum er þannig skipt:
A-riðill
Breiðablik 1 – Haukar 1 – ÍBV 1 – Selfoss 1 – Valur 1 – Þróttur R 1 – Þróttur R 2.
B-riðill
Breiðablik 2 – Haukar 2 – ÍBV 2 – ÍBV 3 – Valur 2 – Þróttur V 1 – Þróttur R 3.
C-riðill
Breiðablik 3 – Haukar 3 – ÍBV 4 – ÍBV 5 – Valur 3 – Þróttur R 4.
D-riðill
Breiðablik 4 – Haukar 4 – ÍBV 6 – Selfoss 2 – Valur 4 – Þróttur R 5.
Mæting:
C- og D-lið leika fyrir hádegi og mæta kl. 8:40. Fyrstu leikir C-liða hefjast kl. 9:10 en kl. 9:30 hjá D-liðum. Pítsuhlé verður kl. 10:10 – 10:40 hjá C-liðum en kl. 10:30 – 11:00 hjá D-liðum. Síðustu leikjum C-liða lýkur kl. 12:20 en hjá D-liðum kl. 12:40. Verðlaunaafhending er strax að síðustu leikjum loknum. Þátttöku C- og D-liða lýkur með skemmtun kl. 12:45 – 13:10.
Mæting:
A- og B-lið leika eftir hádegi og mæta kl.12:35 – fyrir skemmtiatriðin kl. 12:45 – 13:10. Fyrstu leikir A-liða hefjast kl. 13:20 en hjá B-liðum kl. 13:40. Pítsuhlé verður kl. 15:20 – 15:50 hjá A-liðum en kl. 15:40 – 16:10 hjá B-liðum. Síðustu leikjum A-liða lýkur kl. 17:50 en hjá B:liðum kl. 18:10. Verðlaunaafhending er strax að síðustu leikjum loknum.
Allar tímasetningar verða látnar standast nákvæmlega. Þegar ekki er gert ráð fyrir hálfleik verður þó skipt um vallarhelming ef vindur er öðru liðinu í hag.
Allar leikjatöflur verða komnar á heimasíðu Þróttar www.trottur.is á föstudag.
