Ný forysta í barna og unglingaráði

Um nokkurt skeið hefur barna og unglingaráð verið án formanns. Þar sem þetta er afarmikilvægt starf innan deildarinnar var mikið lagt upp úr því að finna góða einstaklinga með þekkingu og reynslu af innviðum knattspyrnudeildar.

Það er mikil ánægja að tilkynna að tvær eldhressar og duglegar konur hafa tekið að sér að stýra barna og unglingaráði. Malen Sveinsdóttir og Þórdís Lilja Árnadóttir hafa tekið að sér formennsku. Það hefur verið ákveðið að Malen hafi yfirumsjón með málefnum sem snerta stelpurnar okkar og Þórdís Lilja mun að sama skapi hafa yfirumsjón með málefnum strákanna.

Stjórn knattspyrnudeilda býður þær velkomnar til starfa.