Næstu leikir hjá mfl. karla og kvenna í knattspyrnu

Í dag föstudag keppa stákarnir við KV á gervigrasinu í laugardal. Leiktíma hefur verið breytt og verður 18:00. KV situr í 6.sæti en Haukar verma 8.sætið. Okkar drengir náðu fyrsta sigri sumarsins í seinasta leik og eru vonandi komnir á skrið eftir brösótta byrjun. 
Á mánudag (16.júní) mæta svo stelpurnar HK/Víking á Víkingsvelli kl. 20:00. Stelpurnar hafa farið vel af stað en töpuðu naumlega fyrir Fjölni sem situr á toppi riðilsins en Haukar í 2. sæti eftir 4 umferðir.
Hvetjum alla að Haukara til að drífa sig á völlinn og hvetja okkar lið.
 
Áfram Haukar.